Heimasíða japönskunema    


Ef það vantar íslenska stafi í nafnið ykkar þá vinsamlegast loggið ykkur inn á blogger, farið í "Edit your profile" og lagið nickið ykkar.

Námstengdir linkar

Linkasíða Gunnellu

Japanese < - > English Dictionary

orðabókin að ofan með japönsku letri

Jeffrey's Kanji Lookup

Hreyfimyndir sem sýna rétta ritun kanji

Shodouka

Hiragana Challenge

Svo þú vilt læra japönsku?!?


Japönskunemar á internetinu

Svanur Super Saiyan

Gunnella
Ester
Hörður Mar
Kristófer
Davíð og Vitleysingarnir


Ef fleiri en þetta eru með heimasíður þá endilega sendið póst hingað og þeim verður bætt í listann

Banzai!! Myndir!


Weblog Commenting by HaloScan.com

2003-12-16

21:28 skrifaði Gunnella:

O.k. þið ykkar sem eruð almennilega að ykkur í lestri japanskra tákna, plíííís þýðið það sem stendur þarna um okkur!!! We´re obviously famous, the question rests upon whether we´re actually "in"famous??? (ódýr tilvitnun í three amigos) Annars takk fyrir samlesturinn áðan, gangi ykkur öllum sem best á morgun :-)

.::::.

2003-12-15

12:34 skrifaði Kristófer:

Ölgerðin!

Já ég drullaðis loksins til að uploda myndunum í gær og má nálgast þær hér eða með því að smella á myndina af Þóri.

Nú þetta var hin fínasta vísindaferð þar sem við skoðuðum hvernig allt þetta sull sem við drekkum um jólin verður til. Fengum síðan hið ágætasta úrval af bjór sem við drukkum í hinum glæsilegasta sal. Þar var okkur líka boðið að horfa á flest allar auglýsingar Ölgerðarinnar sem eru í gangi þessa dagana...mættu alveg henda þessari með litlu stelpunni að syngja, vægast sagt slæmt auglýsing.

Eftir það skelltum við okkur í keilu þar sem menn sýndu hæfileika mikla eða skort á þeim. Á braut 1 var hatrömm keppni milli karla og kvenna sem karlmennirnir sigruðu að sjálfsögðu með glæsibrag! Hlustið ekki á mótmæli þeirra, þær eru lygarar!

Það sem ég man einna best eftir frá þessu kvöldi er þegar Gummi var að lýsa vanhæfni karatekennara og tók karate-chop á fulla bjórglasið sitt og mölvaði það. Það er kraftur í stráknum.


.::::.

2003-12-11

21:40 skrifaði Gunnella:

Sú hugmynd kom upp í dag að loknu prófi að hafa samlestur á morgun. Samlestur þessi sem yrði til undirbúnings fyrir prófið á laugardaginn, væri væntanlega á þann mátann að þeir sem þjálfun hefðu í japönsku tali myndu lesa texta og síðar spurningar úr textanum (sound familiar anyone ? ;-)

Allavegana þá efa ég að hægt sé að fá herbergi á bókhlöðunni með svona stuttum fyrirvara þannig að kaffihús eða öldurhús koma næst upp í hugann ;-) (kjallarinn á keltic?)(bara einn bjór mind you!!!)

Endilega látið vita ef áhugi er fyrir þessu og ef þið hafið uppástungu að heppilegum stað !!


update: Lagaði það að allir íslensku stafirnir í færslunni komu fram sem "?". Djöfull voru þeir margir -Kristófer


---== Halldór bókaði annað hópvinnu herbergið á 4.hæð í Landsbókasafninu milli 5 og 7 í kvöld ==---

.::::.

2003-12-08

21:23 skrifaði Gunnella:

He he he , hvað er ekki til???



Jæja, nú er að reyna á kanji kunnáttuna ;-) eða að fylgja hlekknum ;-P ef í harðbakka slær..

.::::.

00:26 skrifaði Kristófer:

Jæja eru ekki allir í stuði fyrir prófið? Sé fram á langa og góða nótt þar sem mikið magic og kók verður drukkið :)

Gangi ykkur vel á prófinu.


.::::.

2003-12-05

12:25 skrifaði Kristófer:

Vísó

Hvernig er stemmningin fyrir vísindaferðinni? Vonandi góð :) Maður má ekki tapa sér í próf-stressinu þannig að það er um að gera að mæta, fá sér 1-2 bjóra og slaka á í góðum hópi. Svo skellir maður sér í keilu og tekur nokkrar góðar fellur.

Mæting á malarplanið fyrir framan aðalbyggingu háskólans kl 16:20 og reynið að mæta á réttum tíma.


Hvernig er þetta annars að ganga hjá ykkur? Þetta er án nokkurs efa seinlesnasta bók sem ég hef nokkurntíman þurft að lesa fyrir próf. Endalaust af nöfnum og staðreyndum sem er engin leið að muna. Maður er svo ekkert betur settur þótt maður hafi skrifað niður í tímum því það er allt saman þvers og kruss eftir tímalínunni og fer ENGAN VEGIN eftir bókinni, ruglar mann bara. Nú spyr maður sig: af hverju glósaði ég ekki sjálfur úr bókinni?

Lumar enginn á glósum úr henni? :D

Jæja, ég vonast eftir að sjá sem flest af ykkur í dag. Ég ætla a.m.k. að skilja próf-stressið eftir heima.


.::::.

2003-12-02

21:48 skrifaði Kristófer:

Ég og Ester vorum að velta því fyrir okkur hvort það væri ekki sniðug hugmynd að panta hópvinnuherbergi á Þjóðarbókhlöðunni á laugardaginn þar sem væri hægt að ræða um hvern kafla fyrir sig í sögubókinni og hvað er mikilvægt og hvað ekki. Ég held það sé pláss fyrir 6-8 manns í hverju herbergi. Hverjir/jar hafa áhuga?


.::::.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

archives