Heimasíða japönskunema 
|
Ef það vantar íslenska stafi í nafnið ykkar þá vinsamlegast loggið ykkur inn á blogger, farið í "Edit your profile" og lagið nickið ykkar.
Námstengdir linkar Japanese < - > English Dictionary orðabókin að ofan með japönsku letri Hreyfimyndir sem sýna rétta ritun kanji
Japönskunemar á internetinu Gunnella
Ef fleiri en þetta eru með heimasíður þá endilega sendið póst hingað og þeim verður bætt í listann
|
2003-09-2621:35 skrifaði Kristófer:Myndir frá bjórkvöldinu Það svaraði enginn mér varðandi myndir þannig að ég henti mínum örfáu myndum bara upp einum. Hægt að skoða hérna. Annars er ég að fara tungumálapartíið núna og vonast eftir að sjá sem flest af ykkur þar haldandi uppi heiðri Japönsku"deildar" í drykkju og öðrum dólgslátum. .::::. 2003-09-2323:56 skrifaði Kristófer:Maggi...næst þegar þú skrifar notaðu þá "Post & Publish" í staðin fyrir bara "Post" því þetta hér að neðan komst ekkert á síðuna fyrr en ég publishaði það. In other news þá er ég með eitthvað af myndum sem ég tók á bjórkvöldinu og ég veit að einhverjir aðrir voru með digital vélar. Þeir/þær sem luma á myndum mega endilega senda mér þær á kristoh@hi.is eða senda mér gegnum Messenger (kristo_34@hotmail.com) og ég hendi þeim síðan í web-album. Takk fyrir og góða nótt .::::. 2003-09-1910:27 skrifaði Gunnella: Heilt og sælt veri fólkið :-)
Mig langaði bara að þakka fyrir einstaklega vel heppnað og skemmtilegt bjórkvöld! p.s. var að uppfæra linkasíðuna.. .::::. 00:16 skrifaði Svanur: Góða kvöldið, Þetta er mitt fyrsta framlag á þessu bloggi þannig að ef ég er að gera eitthvað vitlaust þá biðst ég afsökunar. Fyrir þá sem vilja kynna sér kvikmyndir nútímans í Japans þá eru nokkrar myndir sem ég einfaldlega verð að mæla með. Myndir sem sýna hvað best hina innri sál Japana sem og þeirra Unique Uniqueness. Tasogare Seibei(Twilight Samurai) Einstök mynd sem vann seinast til 12 af 13 verðlaunum á Japan Academy Awards. Fjallar um Samurai á þeirra seinustu stundu og hvernig einn maður reynir einfaldlega bara að lifa lífinu á því sem það hefur til að bjóða. Aoi Haru(Blue Spring) Önnur mjög athyglisverð sem segir frá lífi nokkurra vina í strákaskóla í Japan. Hvernig lífið leikur manninn grátt og hef heyrt að þessi mynd sé í raun mjög raunveruleg þegar það kemur að hvernig skólalíf ungra stráka er. Til gamans má geta að þessi mynd er byggð á Mangasögu þar sem höfundurinn byggði Mangabókina á atburðum í sínu eigin lífi. Jisatsu Circle(Suicide Club) Þetta er ekki mynd sem þú horfir á með foreldrunum eða notið hana fyrir eitthvað rómó kvöld. Myndin er í raun ádeila á nákvæmlega hvernig margir Japanar reyna að vera svo einstaklega einstakir að þeir enda með því að verða eins og allir hinir og missa tökin á raunveruleikanum. Hún er mjög blóðug og er ekki fyrir þá sem eru veikir fyrir hjarta. Sem dæmi um það má nefna að í byrjunaratriðinu einu saman stökkva 54 skólastelpur fyrir lest og eins og þeir segja "The rest is history" Ping Pong einstaklega hrífandi kvikmynd sem á enga sinn líka þegar það kemur að íþróttamyndum. Ég get í raun varla lýst þessari mynd á neinn einfaldan hátt. Hún er bara vægast sagt yndisleg. Versus Þetta er fyrir þá sem vilja sleppa öllum því sem kallast alvara og njóta stundarinnar. Mynd sem blandar saman Reservoir Dogs, Dawn of the Dead og Braindead. Hrein og tær snilld. Koroshi no rakuin(Branded to Kill) Ein furðulegasta mynd Japana fyrr og síðar. A total mind fuck eins og einhver myndi segja. Hún er einungis fyrir þá sem eru búnir með 20 kaffibolla og eru tjóðraðir við sæti. Fukushû suruwa wareniari(Vengeance is mine) Ein önnur snilldin sem mér skilst svo að sé byggð á sönnum atburðum. Vann til þó nokkurra verðlauna á sínum tíma. Þetta er svona nóg alla vega í bili sem mér dettur svona strax í hug(og sé upp í hillu). Vona svo að fólk notfæri sér þetta og kíki á þessar myndir og að þær varpi nýju ljósi á námið(or something). Meðan ætla ég að leggja mig og sjá hvort að ég nái ekki úr mér þessari flensu fyrir mánudaginn(og nái þar með að smita ykkur öll... segi svona). .::::. 2003-09-1823:14 skrifaði H�r�ur Mar:Í tímanum í dag kom fram að margir eiga ennþá í vandræðum með að lesa og skrifa kana. Þess vegna langar mig að segja frá því hvernig ég lærði það. Ég keypti bókina Remembering the Hiragana eftir James Heisig. Núna er búið að slá henni saman í eina bók með samsvarandi bók um katakana. Þær fást hérna á amazon.com . Eftir að liggja yfir bókinni eina kvöldstund gat ég skrifað upp alltsaman og eftir tvær til þrjár upprifjanir var ég hættur að gleyma einu og einu tákni. Bókin er ekki dýr svo ég mæli með að þeir sem eiga í vandræðum kaupi sér hana bara eða bíði eftir að geta fengið hana lánaða. (Maður les hana bara einu sinni og þá þarf maður hana ekki lengur.) Aðferðin sem bókin byggir mest á er að láta mismunandi strokur tákna ýmsa hluti og segja kjánalegar sögur sem lýsa aðstæðum þar sem "hlutirnir" í hverju tákni koma fyrir. Ég mæli með því að bókin sé ekki tekin of hátíðlega. Ef maður getur búið til sína eigin "sögu" er hún miklu eftirminnilegri og þar með gagnlegri en þessi sem bókin gefur. Ég keypti aldrei katakanabókina heldur útfærði ég bara sömu aðferðina á katakana eftir mínu eigin höfði. Ég á reyndar tvær af þremur bókum úr flokknum Remembering the Kanji eftir sama höfund og hef aðeins notað fyrstu bókina. Það er ekki gott að læra eftir henni því táknin eru kynnt í mjög heimskulegri röð, sem kemur í veg fyrir að maður geti notað táknin um leið og maður hefur lært að skrifa þau. Hins vegar finnst mér gott að hafa kynnst aðferðinni sem notuð er í bókinni því hún er mjög góð og getur gagnast vel við að læra kanji sjálfur í þeirri röð sem manni sýnist. Jæja, ég vona að þetta hjálpi einhverjum. Kveðja, Hörður Mar. Summary in English In today's class it turned up that many of the class are having a hard time learning kana. I learned it easily using the book Remembering the Hiragana by James Heisig. It uses a very good method and it is not expensive so I recommend it to those who are having difficulties with the kana. I implemented the book's method after my own imagination when I learned katakana, instead of buying the katakana-book which now has been made into one book with R.t.H. I also have Remembering the Kanji by the same author, but it is not good for studying since it doesn't order the kanji with the most common ones first. It can be worth taking a look at anyway because it presents an excellent method for studying kanji and remembering how to write them. One can then implement the method on one's own, learning the kanji in a more sensible order. The method is based on making mental pictures of situations involving things and creatures that represent the various strokes and radicals that the kanji are made up of. When used correctly it helps in remembering the stroke order of the kanji. .::::. 2003-09-1509:31 skrifaði Gunnella:Heilt og sælt veri fólkið :-) Gunnella heiti ég og langaði bara til þess að benda á þetta forrit hér til vinstri. Þetta er japanskt ritvinnslu forrit sem hefur reynst mér vel hingað til. Tiltölulega auðvelt í notkun, hægt að fletta upp kanji og rúllar auðveldlega á milli hinna fjögurra ritkerfa :-)
Einnig er ég með linkasíðu þar sem ég hendi inn öllum japantengdum linkum sem ég vil halda í og vona að hún nýtist kannski fleirum :-) .::::. 2003-09-1415:37 skrifaði Kristófer:Ert þú til í nemendafélag? Eins og vonandi flestir vita þá verður í þessari viku farið í viðræður um stofnun nemendafélags Japönskudeildar. Nemendafélag 'virkar' þannig að þeir sem vilja verða meðlimir þurfa að borga sig inní það, sá peningur sem safnast er síðan allur notaður í þágu nemenda til að t.d. leigja sali fyrir partí og aðra skemmtun. Meðlimir í nemendafélaginu fá líka nemendaskírteini en með því fylgja einhver tilboð...vonandi (frítt á ákv. skemmtistaði, tilboð á bar, pizzutilboð...). Tilgangur félagsins er að stuðla að sem bestri menntun og aðstöðu japönskunema og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna. Auk þess skal félagið stuðla að samheldni félagsmanna og vera leiðandi afl í félagslífi. Það mun vanta fólk í þessar stöður: Formann, gjaldkera, skemmtanastjóra og hugsanlega ritara. Áður en viðræður hefjast um stofnun nemendafélags þá væri mjög fínt ef þeir sem hafa áhuga á að gerast meðlimir, eða hafa einhver comment varðandi þetta allt saman, myndu láta ljós sitt skína kommentakerfinu hér fyrir neðan. .::::. 2003-09-0821:28 skrifaði Kristófer:Eins og fleiri nemendur í japönsku þá hef ég hamast í kvöld við að læra katakana. Nú er svo komið að ég "kann" það allt saman og finnst um leið eins og þrýstingur í höfðinu á mér hafi aukist...farinn að bólgna út af þekkingu býst ég við. Ég gerðist nú svo grófur um helgina að læra hiragana líka þannig að ég er nokkuð vel settur í dag. Ætti a.m.k. að geta lesið eitthvað í blessaðri kennslubókinni. Maður er nú ekki orðinn neitt rosalegur samt, lestrarhraðinn er svipaður og hjá litlu barni sem er að læra að lesa í fyrsta skipti...enda er maður þannig. Á 3 dögum hefur mér tekist að læra að lesa uppá nýtt og það kalla ég helvíti gott. Þegar ég opnaði kennslubókina í byrjun námskeiðsins skildi ég ekkert í hrafnasparkinu á síðunum og var viss um að mér tækist aldrei að læra þetta, í dag get ég stoltur opnað bókina og á ca. klukkutíma stamað mig í gegnum heila síðu (^_^) update: Hörður Mar a.k.a. keeeeeaaaallinn lánaði mér fyrir helgina bókina Remembering The Hiragana og verður að segjast að sú bók er snilld (ánægður núna Hörður?). Blöðin sem Umezawa-sensei gaf okkur eru nú alveg jafn góð og nota svipaðar aðferðir. .::::. 16:44 skrifaði H�r�ur Mar: Bætti inn link á Hiragana Challenge, leik sem Umezawa-sensei benti okkur á. .::::. archives |