Heimasíða japönskunema    


Ef það vantar íslenska stafi í nafnið ykkar þá vinsamlegast loggið ykkur inn á blogger, farið í "Edit your profile" og lagið nickið ykkar.

Námstengdir linkar

Linkasíða Gunnellu

Japanese < - > English Dictionary

orðabókin að ofan með japönsku letri

Jeffrey's Kanji Lookup

Hreyfimyndir sem sýna rétta ritun kanji

Shodouka

Hiragana Challenge

Svo þú vilt læra japönsku?!?


Japönskunemar á internetinu

Svanur Super Saiyan

Gunnella
Ester
Hörður Mar
Kristófer
Davíð og Vitleysingarnir


Ef fleiri en þetta eru með heimasíður þá endilega sendið póst hingað og þeim verður bætt í listann

Banzai!! Myndir!


Weblog Commenting by HaloScan.com

2003-10-30

18:29 skrifaði Kristófer:


BJÓRKVÖLD Í KVÖLD!!

Hittumst á prikinu uppúr kl 21:00

Bjór á 450kr

Bjór+skot á 600kr.


.::::.

03:25 skrifaði Gunnella:

Hey Við erum fræg!!!! :-D






:-)


.::::.

2003-10-27

21:04 skrifaði [Davíð K. Gestsson]:

Hahah! Húhei! Póstið hentist loksins út! Kjörið tækifæri fyrir aðra tilraun...



...og virkaði það?

Dabeeznitch - (>.<;)

.::::.

20:05 skrifaði Svanur:

Já, gullfiskar eru ekki skemmtilegir en kettir eru nú þó bestir.

Stundum spái ég hvort að japanir gefi frá sér eftirfarandi hljóð:
"neko neko neko" eða "ne ne ne ne ne" þegar þeir reyna að laða til sín kisulóru.

Annars ætlaði ég nú bara að láta fólk vita að félagsskírteinin eru komin í umferð og ef þið eruð ekki búin að fá ykkar, þá annað hvort tala við MaNoose eða Gúmí, eða í besta falli, skrá ykkur ef þið eruð ekki þegar búin.

Ekki vita allir af því en á næsta föstudagi til frelsis, er maður kemur sveittur og þreyttur úr vinnu þá verður bjórkvöld ef stjörnumerkin lofa sínu, frekar um það í ellefu fréttum.

Svo hef ég verið að spá; fyrst að japanir eru svona litlir, er japanskt porn ekki þá bara dvergaklám?

LEIÐRÉTTING: Bjórkvöldið er á FIMMMTUDAGINN en ekki föstudaginn.
Nú ef það er vitlaust þá verður leiðréttingin leiðrétt.

.::::.

2003-10-25

02:22 skrifaði H�r�ur Mar:

Mér datt í hug að einhverjum þætti gaman að fá birt hérna á síðunni haiku-ið sem ég fór með í rútunni. Fyrir þá sem voru ekki í rútunni þá er sagan á bak við ljóðið sú að árið 1998 fór ég í planetarium í Kaupmannahöfn og keypti sundbolta með áprentuðu korti yfir stjörnur himinhvolfsins. Löngu síðar fór ég með boltann á fyllirí með bekknum mínum í læknadeildinni og týndi boltanum með þeim sviplegu afleiðingum að ég hef ekki getað áttað mig í þessum alheimi síðan. Nokkrum mánuðum síðar fór ég að fá áhuga á stjörnuskoðun og fór að sakna þessa merkilega bolta. Þá samdi ég eftirfarandi haiku, sem ég birti á blogginu mínu fyrir ári.
Stjörnusundbolti,
ég drakk bjór með þér í vor.
Nú er ég villtur.


.::::.

02:21 skrifaði Svanur:

Hó hó, gleðileg jól krakkar mínir. Leyfið stelpunum að sitjast á kjöltu minni og segja mér sögur af Latexi og Bukkake drauma þeirra...
öhömm....
burtséð frá mínum gallaða huga þá er videokvöld 2 lokið. Mæting var kannski ekki eins góð og á Spirited Away enda er Ping Pong matur fyrir sálina og hjartað. Ekki allir sem kunna að meta það enda amlóðar og ambáttir kapítalískra jötunnskrafta.

Myndin er (að mínu mati) algjör snilld og fékk ég nýja innsýn í hana eftir að hafa séð hana þarna í annað sinn. Jun kom auðvitað hress að vanda með sín hundrað prósent og taldi mig vera eitthvað klikk, enda vita þessir japanar lítið hvað er klikk þegar þeir birta alls konar viðbjóð í myndum sínum(Bizita Q, Ichi the Killer). Íslendingar eru bara ástríðusamir, það eru japanar sem eru klikk.

Þeir sem misstu af sýningunni misstu líka af nærveru tveggja ungra dama frá Írlandi hinu austanverðu, þeas Japans og voru þær hressar og fannst eflaust lítið til íslenskra karlmanna komið er þeir fara að spila allt í einu "Super Smash Bros Melee" á stóra skjánum, enda klikk eins og ég hef oft nefnt.

Spurningin er að hafa einhvern tíman japanska lágmenningarsýningu í vetur og vil ég endilega fá að vita hvernig fólk tekur í það enda ekkert gaman af enginn áhugi er fyrir hendi, þó að þið græðið ómetanlega á því að mæta þrátt fyrir leiðinlegt hugarfar.

Svo er einnig spurning(margar spurningar, enda erum við sem stjórnum ykkur námsfúsir, þeas allir nema ég) hvort að væri ekki gaman að taka einhvern tíman hópferð á Marú og fjölmenna á staðnum og skemmileggja(read as eyðileggja) staðinn að íslenskum sið og kannski siða Jun til.

Ég vil svo að fólk fari að tjá sig meira! Svarið í comment dálkinn og látið heyra í fingrum ykkar meðan þið lemjið á lyklaborðið. Ég er orðinn þó nokkuð leiður á að hlusta á triologue þar sem Maggi, Gummi og Kristó spjalla saman, sérstaklega þar sem við spjöllum nóg í tíma, Umezawa-sifu til mikilla leiðinda.

Annars óska ég ykkur góðrar helgar stundar með Ragga Braga á létt 96 komma 7 er hann spilar ljúfa tóna eftir In Furamu(In flames). Þeir sem verða vísir á að hlusta á FM munu verða teknir upp vietcong style og refsað af Pixel Rambo, enda er hann í vondu skapi þessa dagana.

.::::.

2003-10-18

14:12 skrifaði Svanur:

Þá er fyrsta vísindaferðin búin og kaflaskipti hafa orðið í sögu okkar félags. Ekki síðan land byggðist hefur vísindaferð verið í félagi japönskunema og er þetta þess vegna tímamót í okkar þjóðfélagi.
Ég vil endilega þakka Mareru(Marel) fyrir hlýjar móttökur og má með sanni segja að bygging þeirra á skilið öll þau verðlaun sem hún hefur fengið, jafnvel styttuna sem leit út eins og kvennmannsbrjóst. Eins og heiðursmönnum sæmir þá buðu þeir upp á bjór og kók(fyrir anti-alka eins og mig) og Lengi vel þóttist ég vera með bacardi límon í kóki og horfðu sumir með augu á við undirskálar á glasið mitt í leit að sannleikanum bakvið Pí.

Eftir góða og skemmtilega sýningu og veitingar var förinni heitið niður í bæ, enda ýmislegt þar sem dregur fólk að. Satt að segja man ég ekki eftir hvað staðurinn heitir en rámar þó í nafnið "ölstofa" eitthvað. Meðan restin fór niður á ölstofuna fóru Kristófer og Gummi heim í Gamecube til að skera úr endanlega hver væri meistarinn í japönskum bardagaleikjum.
Mikil gleði og fjör voru á ölstofunni og eftir klukkutíma eða svo kom Jun að vörmuspori(í Yakuza fatnaði) þangað niður, eða upp. Jun fór svo með smá kennslu þar sem hann sagði að við gætum ávalt haft samband við hann ef við höfðum einhverjar spurningar en hann vissi ekki að utan kennslustofunnar þá erum það við sem sjáum um kennsluna og reyndum við að koma honum til skilnings um marga vinsæla íslenska frasa og drykkjuhefð okkar(Víkingadrykkja, eins og Halldór ekki Hauks orðaði það).
Svo byrjaði Jun að tala um hversu líkur Jet Li hann væri, enda finnst mörgum vestrænum íbúum allir asíubúar líta eins út og hefur hann án efa smitast smá af okkar þröngsýni.

Eftir langa og mikla drykkju var klukkan orðin margt, enda var hún alveg að verða tólf. Þá ákváðum við sem voru eftirlifandi að rölta niður á nonnabita, Maggi varð eftir eins og sönnum hermanni sæmdi og ræddi við miðaldra karlmann inn á klósetti(þið megið misskilja þetta ef þið viljið). Ég sjálfur fór svo heim eftir nonnabitann þar sem ég náði að borða svo hratt að ég gleymdi að tyggja og maginn fór þá að gefa frá sér skrítna lykt sem og ýmiss óhljóð.

En núna förum við yfir kennsluefni dagsins:
1. Við lærðum að Marel er ekki í fiskvinnslu, heldur í vinnslu tækja fyrir fiskvinnslu.
2. Við lærðum að maturinn er mjög góður í Marel en á sama tíma er hann mjög grunsamlegur.
3. Þeir nota ýmsar nýjar aðferðir sem við munum sama sem ekkert eftir, nema kannski Hörður.
4. Jun er hustler.
5. Jun er eflaust orðinn mjög leiður á okkur þar sem við vorum að berja inn í hann íslenskar hefðir á mettíma.
6. Jun er líka eflaust orðinn afskaplega leiður á okkur þegar við spyrjum:"Hvernig segir maður pissa á japönsku?""Hvernig segir maður haltu kjafti?" osfrv.
7. Black Russian er dýr(kyuuhyakugojuuendesu)
8. Að þrátt fyrir þó nokkra svikara(baikokudo) þá mætti góður hópur manns sem hafði mjög gaman af afasögunum hans Gumma og núna vitum við öll að 2 stúlkur hafa dáið í Engihjalla og þar sérstaklega í Engihjalla 19.
9. Esther lærði hvað Scatlover þýðir.
10. Það er ekkert tíu, enda hefur fólk enga rænu eftir til þess.

Ég vil alla vega þakka fólk fyrir að mæta og það er engin spurning, það erum við sem hópur sem getum gert allt og notið líðandi stundar á athyglisverðan og fjölbreyttan hátt.*sniff sniff

Svo kemur hérna japanska útgáfan:
Watashi wa subanuru desu. Watashi wa gakusei de daigaku no aisurando desu. Watashi no tomodachi wa Oni no neko desu. Ri-san mo gakusei desu. Nanji desu ka. gozen roku ji han desu. hai, so desu ne.

Eins og þið sjáið þá er hægt að koma miklu meiri gögnum í japanskri tungu en íslenskri.

.::::.

2003-10-16

22:48 skrifaði Svanur:

Jæja, núna nálgast nýtt videokvöld óðfluga og hér kemur smá kynning. Sýningin mun verða haldin með ámóta sniði og á seinustu sýningu þar sem við sýndum Spirited Away við góðar undirtektir og ég vil þakka öllum sem komu. Einnig vona ég að mætingin verði jafn góð á þessum sýningum í gegnum veturinn.

Næsta mynd sem verður til sýnis er engin önnur en Ping Pong

IMDB umfjöllun

Þessi mynd er enn ein sönnunin um yfirburði Asíubúa í kvikmyndagerð og sýnir hvernig á að gera íþrótta komedíur. Myndin er nett blanda af komedíu og drama og fjallar um tvo unga vini í framhaldsskóla og hvernig þeir takast á við mikilvægasta part lífs síns: Ping Pong.
Þessi mynd snertir svolítið á það svið sem er kannski frekar viðkvæmt og það er þessi keppnisandi sem getur orðið til í svona menntaskólakerfi og upp úr. Eins og margir vita þá er mjög svipuð menning í Bandaríkjunum og ekki er óalgengt að nemendur kosti bæði nám sitt og skólagöngu með íþróttarhæfileikum. Þessi mynd sýnir mjög glögglega hversu harður og brenglaður þessi heimur er orðinn í nútíma þjóðfélagi og hvernig þetta þrýstir svo á fólk og hversu mikið það er krafist af þeim og einnig er gert smá grín að því í leiðinni.

Fyrir mitt leyti þá get einungis sagt að þessi mynd er algjör gimsteinn í kvikmyndaflóru Japana. Fyrir þá sem fíla ekki Anime þá er hérna eitthvað haldbærara og fyrir þá sem horfa einungis á Anime þá er tími til kominn að kíkja á hitt efnið.

Sýningin verður svo betur kynnt í tíma og klukkan hvað sýningin hefst.

.::::.

2003-10-15

21:31 skrifaði Svanur:

Jæja strákar og stelpur, núna eru kosningar hafnar varðandi nafn okkar ástkæra félags(aldraðra) og þið ættuð flest að hafa fengið tölvupóst með tillögum og leiðbeiningar til að kjósa.

Fyrir ykkur sem ekki hafa skoðað tölvupóstin ykkar þá skuluð þið gera það núna því annars... mun pixelrambo hakka ykkur í sig í tíma. Treystið mér, þið viljið ekki fá pixelrambo í heimsókn. :S

Svo má ekki gleyma, það væri ekki félag án ykkar þáttöku þannig að ég vil þakka öllum sem hafa þegar skráð sig og þeim sem "ætla"(wink, wink; blikk, blikk) að skrá sig.

Annars sé ég ykkur í prófinu á morgun eða í Marel.

Svanur hefur lokið ræðu sinni.

.::::.

2003-10-05

22:37 skrifaði Kristófer:

Íslendingar í Japan

Ég var að frétta af 2 Íslendingum sem eru við nám í Japan. Þessir ágætu drengir heita Jón Svan Sverrisson og Bendt Harðarson en þeir eru þarna að taka hluta af sínu námi við Bifröst. Eru líka báðir fyrrverandi Verzlingar.

Bloggsíðurnar þeirra eru hérna

Svan

Bendt

Þeir hafa verið útí síðan í byrjun september..ef ég man rétt.

Njótið vel.

.::::.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

archives