Heimasíða japönskunema 
|
Ef það vantar íslenska stafi í nafnið ykkar þá vinsamlegast loggið ykkur inn á blogger, farið í "Edit your profile" og lagið nickið ykkar.
Námstengdir linkar Japanese < - > English Dictionary orðabókin að ofan með japönsku letri Hreyfimyndir sem sýna rétta ritun kanji
Japönskunemar á internetinu Gunnella
Ef fleiri en þetta eru með heimasíður þá endilega sendið póst hingað og þeim verður bætt í listann
|
2004-01-2918:24 skrifaði Gunnella:Heil og sæl,
Eftir svefndrukkinn tímann í dag þá fann hérna nokkrar vefsíður sem mér datt í hug að gætu komið að gagni við lestur/skilning á Genji. Í fyrsta lagi þá er það ættartaflan, enda eru fjölskyldutengslin til þess fallin að rugla ;-) ![]() Hér er svo listi yfir megin persónur sögunnar.
Ítarlegar lýsingar á hverjum kafla fyrir sig. Myndskreytingar við söguna í gegngum tíðina. Textinn á japönsku ;-) fyrir þá sem þora, meir að segja hægt að lesa hann með romaji!! Sagan sjálf með myndskreytingum og lýsingum. ýmsir tenglar. Og loks hérna ein grein sem smá mótvægi við allann feminismann ;-) "Hikaru Genji as a Transvestite Mother'" .::::. 2004-01-2616:52 skrifaði Kristófer:Maðurinn er fundinn! Því er hér komin mynd tekin um sumar einhverstaðar í Japan. ![]() .::::. 2004-01-1923:11 skrifaði Kristófer:Myndir frá Idol-Bjór-Partý! Já þá eru þær komnar myndirnar sem munu fá alla sem ekki komu með okkur til að sjá eftir því það sem eftir lifir þeirra ævi! Það var vægast sagt hörkustuð á fólkinu og var daðrað all hressilega við Bakkus, þó svo enginn hafi algjörlega fallið fyrir honum. (Gengur betur næst Bakkus). Hinir sönnu stuðboltar létu ekki smá golu og létta snjókomu stoppa sig og mættu á Gaukinn á slaginu 20:00. Banzai gerðist svo rausnarlegt að vera með 30l bjórkút sem meðlimir gátu þambað úr eins og þeir vildu. Það voru fáir sem létu það boð fram hjá sér fara því á innan við klukkutíma kláraðist kúturinn...verðum greinilega að fá stærri kút næst! Kláraður kútur þýddi þó engan vegin að Banzai hætti drykkjunni því hún jókst bara ef eitthvað var. Mestu hörkuboltarnir gengu jafnvel svo langt að fá sér tvöfalt Tekíla með lirfu á botninum. Þvílík harka. Fóru svo beint í sleikjó á eftir. Veit ekki hvort það var lirfan eða sleikjóinn en Davíð var ekki með hressustu mönnum daginn eftir...hann kennir lirfunni um en ég vill meina að það sé í raun sleikjóinn.
Efri hæð Gauksins er frekar stór og eigendurnir gerast svo snjallir að hafa pool-borð á staðnum þannig að fullur lýðurinn getur skemmt sér. Banzai voru engir eftirbátar í þeim efnum og héngu einhverjir í pool allan tímann. Karlmenn höfðu þar yfirhöndina að vanda (vá hvað ég á von á föstum höggum). Nú er þetta allt í temmilegri móðu hjá mér en ég man að fólk spjallaði og skemmti sér með eindæmum vel. Svo er ekki verra að eitt nýtt par myndaðist þetta kvöldið en engum sögum fer af því hvernig kvöldið endaði hjá þeim. Munið bara að setja öryggið á oddinn strákar!
Undir lokin var fólkið orðið verulega drukkið og þegar svo er komið fyrir fólki eru oft teknar með eindæmum góðar ákvarðanir. Við ákváðum að labba heim til Davíðs og taka því rólega þar. The Fellowship of The Drunk var myndað en það skipuðu Davíð, Helgi, Kristófer, Ester, Tomoko, Jun og Saga. Í fyrsta hluta lenti The Fellowship í miklum snjóboltastríðum...við hvort annað. Enginn slasaðist alvarlega en sumir voru þó hætt komnir á tímabili. Kuldinn hafði engin áhrif á hópinn enda var hópurinn það drukkinn að sumir höfðu takmarkað vald yfir fótleggjum sínum. Í hluta 2 þurfti félagsskapurinn að glíma við djúpan snjó og hættulega kanta sem leyndust undir snjónum. Margir féllu og urðu snjónum að bráð en dugnaði tókst að rífa liðið upp aftur...og aftur...og aftur. Ester passaði líka vel upp á okkur með því að láta okkur vita ef bíll var í svo mikið sem 1000m fjarlægð með varúðaröskrum sínum, "Bíll! Bíll! Bíll!". Loks skildu leiðir við stöðuvatn Reykjavíkur. Jun og Saga ákváðu að yfirgefa okkur og halda á vit sinna eigin ævintýra. Þau þurftu að labba sömu leið en þó vildi Jun allt gera til að fá Sögu til að halda áfram með okkur því ef sæist til þeirra labba saman burt "the rumours would start". Jun fékk ágætis forskot á Sögu en engum sögum fer af því hvort hún náði honum eða hvort eitthvað gerðist eftir að þau hurfu sjónum okkar.
Hluti 3 reyndist sá erfiðasti því Vetur konungur gerði okkur erfitt fyrir með kuldabola og mótvindi ásamt því að hafa hlaðið göturnar snjó. Eftir mikla þrautagöngu komumst við loksins heim til Davíðs, þreitt og köld. Við vorum aldrei í hættu á leiðinni því Ester mamma passaði vel að engir bílar myndi lenda á okkur. Gróflega reiknað tók ferðin um 45mín. Við komum okkur vel fyrir í herberginu hans Davíðs og hlustuðum á japanskt rapp og spjölluðum. Eftir um 15mín af því fór fólk svo heim á leið í taxa sem Helgi hözzlaði með því að sweet-talka símadömuna all hressilega. Ef hann hefði ekki notað krafta sína til að draga símadömuna á tálar þá hefðu þau þurft að bíða eftir taxa í a.m.k. klukkutíma. Ætli hann hafi launað henni greiðann?
Davíð aumkaði sig þó yfir einn aumingja (mig) og veitti honum gistingu uns hann gat komið sér heim á leið sjálfur (lesist: var sóttur af pabba). Allt í allt var þetta alveg frábært kvöld og þau sem mættu ekki misstu svo sannarlega af miklu. Ég bíð sjálfur spenntur eftir árshátíðinni og svo Karaoke-partý 2! Takk fyrir mig. update: Ef einhver vill fá einhverja myndanna í hærri upplausn þá luma ég á þeim flestum í 1024x768 eða hærra. .::::. 2004-01-1722:07 skrifaði Kristófer:Hópferð á The Last Samurai? Hver eru til í það? púúúú það virðas flestir bara vera búnir að sjá hana! Ég fer þá bara einn *hnuss* .::::. 22:07 skrifaði Kristófer: Þakka fyrir gott kvöld á föstudaginn og frábært að sjá hvað það mættu margir þrátt fyrir þetta slæma veður. Bjórinn var ekki lengi að klárast en sem betur fer var gott tilboð á barnum þannig að fólk gat haldið áfram að væta kverkarnar þótt kúturinn okkar kláraðist. Ég er með alveg tonn af myndum frá kvöldinu en áður en ég get sett þær inn þarf ég að ná í myndavélina til Davíðs þar sem hún er í (vonandi) góðu yfirlæti. .::::. 2004-01-1316:21 skrifaði Kristófer:Á föstudaginn verður Idol Bjór pa-ti!! Við verðum á efri hæð Gauksins þar sem við getum horft á Idol á stóru tjaldi þannig að Idol sjúklingarnir þurfa ekki að hafa áhyggjur af Idolinu sínu. Nú við bjóðum einnig upp á frían bjór (meðan byrgðir endast) fyrir meðlimi Banzai. Þeir sem eru ekki meðlimir en langar í frían bjór geta skráð sig í Banzai eða borgað 500kr á staðnum og þar með fengið aðgang að kútnum. Stuðið byrjar kl 20:00 og hafið í huga að þetta eru bara 30l af fríum bjór þannig að ef þið viljið geta drukkið eitthvað af viti þá er betra að mæta snemma. Banzai! ps Komin með annað kommentakerfi...fyrst við erum byrjuð að nota það ætti það að deyja eftir 1 mánuð eins og hin tvö. .::::. 2004-01-1123:32 skrifaði Kristófer:Hvað segiði, er stuð fyrir einhverju næstkomandi fimmtudag? Eða eigum við að færa stuðið á einhvern annan dag? Spurning hvort kvikmyndasýningarnar séu hentugri á einhverjum öðrum dögum en fimmtudögum..? Eru fimmtudagar fínir fyrir bjórkvöld eða vilja einhverjir aðra daga? Allsberir miðvikudagar? Látið puttana tala hér í kommentakerfinu! edit: Serverinn hjá þeim sem hýsir kommentakerfið er niðri, ætti að lagast seinna í kvöld edit #2:: jæja allir í stuði? svo ég noti orð þess sem bjó til kommentakerfið sem við notum: "the bastards that host it decided to suspend my account. I do not know as of yet when this situation will be resolved." Við verðum bara að bíða og sjá :s .::::. 2004-01-0600:50 skrifaði Kristófer:Jæja nú fer að líða að fyrsta skóladegi, ég vona að allir muni eftir að gera blessuðu heimavinnuna. Þetta er nefnilega alveg skrambi mikið. Ég ætlaði varla að trúa því fyrst þegar ég heyrði að við fengjum bunka af heimavinnu til að gera yfir jólin en þetta er víst venjan í Japan. Væri nú til í að benda Umezawa-sensei á að þetta er ekki Japan heldur Ísland...en það viðurkennist alveg að þessi heimavinna er fín uppá að maður sé kominn með allt á hreint aftur áður en skólinn byrjar. Svo átti ég víst að minnast á að við gáfum Umezawa jólagjöf. Gjöfin ku vera japönsk þýðing á Hávamáli og var tekið úr Banzai sjóðnum fyrir henni. Nú vill ég líka fara að fá einkunnirnar mínar! .::::. 2004-01-0117:10 skrifaði Kristófer:![]() .::::. archives |