Heimasíða japönskunema    


Ef það vantar íslenska stafi í nafnið ykkar þá vinsamlegast loggið ykkur inn á blogger, farið í "Edit your profile" og lagið nickið ykkar.

Námstengdir linkar

Linkasíða Gunnellu

Japanese < - > English Dictionary

orðabókin að ofan með japönsku letri

Jeffrey's Kanji Lookup

Hreyfimyndir sem sýna rétta ritun kanji

Shodouka

Hiragana Challenge

Svo þú vilt læra japönsku?!?


Japönskunemar á internetinu

Svanur Super Saiyan

Gunnella
Ester
Hörður Mar
Kristófer
Davíð og Vitleysingarnir


Ef fleiri en þetta eru með heimasíður þá endilega sendið póst hingað og þeim verður bætt í listann

Banzai!! Myndir!


Weblog Commenting by HaloScan.com

2004-02-27

11:56 skrifaði [Davíð K. Gestsson]:

Anaunsumento!

Það er ofísíalt. Það verður teitissamkoma hjá mér í kvöld og öllum japönskunemum er boðið! Staðurinn til að vera á upp úr klukkan 9 í kvöld verður Miklabraut 46 (fyrir miðju Miklatúni) á efri hæð, hurð til vinstri...svo er jólagreni á handriðinu líka þannig að staðsetningin ætti að liggja í augum uppi. Sem sagt það er öllum velkomið að mæta vopnuð bjórkippum og góðu skapi. Jé.



.::::.

2004-02-22

23:53 skrifaði Svanur:

Well well, the time is close at hand when we shall get our power level rating. Of course, mine shall not be that high since I have learned through years of experience to keep my power level down. Who knows, in real-life combat, one might be required to use the element of surprise against an oncoming opponent. I hope your training has served you well although few you have yet to reach super Saiyan status. One must be completely focused and then be in a zone where one's life means absolutely nothing. Then, only then, will you achieve the next plateau which encompasses legendary power beyond your wildest dreams.
They day might not be at hand but it might not be that far away; maybe just a glimmer in the horizon. "Patience is a virtue", they say, but is it? Perhaps in countless things, such wisdom might be apt and fit for the occasion but this day, this year, is not the time and place as speed is of the essence in our daily war.

Go forth, my grizzly warriors of virtue. Fight not for yourself but rather selfless abandon fit for a Saiyan. Be all that you are and forget about what you can be. It is the beginning of the end.

.::::.

2004-02-21

18:05 skrifaði Kristófer:

Loksins Loksins Loksins!

Já loksins eru myndirnar komnar! Þær má nálgast hér. Þær hjálpa svo sannarlega til við að rifja upp atburði kvöldsins, a.m.k. mundi ég ekki eftir miklu fyrr en ég fór að skoða þær.


.::::.

2004-02-18

20:41 skrifaði Kristófer:

Lost in Translation

Nú er planið að fara á Lost in Translation á morgun, fimmtudag, kl ??:?? í Smárabíó. Möguleikarnir eru að fara kl 20:00 eða 22:20 sem er víst full seint fyrir þá sem taka strætó á staðinn því þeir ættu í erfiðleikum með að komast heim með þeim annars frábæra ferðamáta. Nú ef það eru fáir sem neyðast með strætó þá ætti að vera lítið mál að skutla þeim einstaklingum heim því nóg er af góðhjörtuðum bíleigendum í hópnum (eða fólki sem getur fengið lánaðan bíl foredranna) þannig að það er ekki neitt vandamál.

Jæja best að halda áfram með lærdóminn!

.::::.

10:31 skrifaði Kristófer:

Smávegis

Hérna má finna slatta af dóti tengdu kanji. Level 2, 3 og 4 KanjiList eru allir saman í kanji1000.pdf og svo er þarna ein bók sem þið getið skoðað.


.::::.

2004-02-15

14:30 skrifaði Kristófer:

Lost in Translation

Hvernig er þetta eiginlega, átti ekki að smala saman á hana? Það er nú orðið soldið langt síðan hún kom í bíó en vonandi ekki margir úr þessum hóp búnir að sjá hana...er stemmning fyrir því að fara á hana? Ég held það sé þá best að fara sem fyrst á hana, áður en hún fer í minni sal...

.::::.

2004-02-13

15:09 skrifaði Kristófer:

Fyrir þau sem ekki skoða póstinn sinn

Ég fékk eftirfarandi póst frá japan-ísland samtökunum eða hvað sem þau heita. Fjallar um útvarpsþætti sem verða nú á næstunni, að vísu helst til snemma.
Ágætt að minnast á að í hópnum eru nokkur sem við þekkjum úr náminu, þ.e. Árni, Umezawa-sensei og Bergljót.
-------------

Fyrsti þáttur af sex um Japan og japanska menningu verður fluttur núna á laugardaginn 14. febrúar klukkan 10:15 á Rás eitt og hann er um vinsældir japanskrar poppmenningar og aukin samskipti Íslendinga og Japana. Þættirnir endurfluttir á mánudögum klukkan 15.03

Í fyrsta þættinum verður rætt við Árna Kristjánsson, Gunnhildi Gunnarsdóttur, Kaoru Umezawa, Yuga Ogura blaðamann frá Japan, Halldór Ásgeirsson, myndlistarmann og Úlfhildi Dagsdóttur, sérfræðing
í mangamyndasögum.

Annar þátturinn verður um japanska menningu í gegnum samuræa, kvikmyndir og tónlist. Sá þriðji er um menntakerfið í Japan, kröfur og álag og þau félagslegu vandamál sem komið hafa upp. Sá fjórði er um daglegt líf í Japan, lífshætti og trúarbrögð. Sá fimmti um pólitík og efnahagsmál. Í þeim síðasta er sendiherra Japana á Íslandi Fumiko Saiga í aðalhlutverki og m.a. rætt við hana um stöðu kvenna í Japan.

Þættirnir eru unnir af Bergljótu Baldursdóttir
Ríkisútvarpinu


.::::.

2004-02-09

15:27 skrifaði Kristófer:

Hin snöggu

Jæja það skráðu sig bara 4 sem áhugasöm um að fara hraðar yfir bókina en ég trúi nú ekki öðru en það vilji fleiri vera memm.
Ég hafði hugsað mér að við myndum byrja á þessu í þessari viku, þ.e. vera búin að læra 9. kafla eins vel og við getum á fimmtudag/föstudag og fá eitthvað auka-efni frá Umesawa sensei og panta okkur hópvinnuherbergi þar sem við gætum farið yfir efnið....or sumthin. Ég fékk líka eitthvað kennsluefni frá Árna sem er svona eins og plöturnar í gamla daga, get látið það í bútum á heimasvæðið mitt þaðan sem allir geta sótt það.
Komið svo endilega með hugmyndir um eitthvað sem við gætum gert. Auka kanji lærdómur? Auka málfræði? Hvað viljið þið gera?


.::::.

2004-02-04

13:14 skrifaði Svanur:

Jæja, þá kláraðist annað *hóst* frábært videokvöld...
Fyrir utan leiðindi í húsvörðum sem heimtuðu að við borguðum 15.000 króna útkalls gjald þá lentum við í veseni með myndgæðin og endaði það með því að við horfðum á myndina í einungis grænum og bláum litum því sama hvað við prófuðum þá gátum við ekki reddað rauða litnum. Svo náðum við heldur ekki að klára seinustu 5 mínúturnar vegna þess að það var verið að loka skólanum.

Möo þá hljóta þessi videokvöld að hafa ákveðna bölvun yfir sér :( því það er alltaf eitthvað vesen sem fylgir þeim eða kannski fylgja þau einungis vini hans Dóra... I wonder....

Alla vega, ég biðst velvirðingar á þessu klúðri sem við náum alltaf að skapa.


Á léttari nótum....

Þar sem Gunnella póstaði link á japanskt cosplay þá verð ég nú bara að pósta link á síðu sem sínir hversu langt áhrif japanskrar menningar hafa teigt sig.

amerika no kosupure-

.::::.

2004-02-02

20:45 skrifaði Kristófer:

hayaku

Ég veit að það eru einhver í hópnum sem finnst við fara full hægt yfir námsefnið og vilja kannski fara hraðar yfir sögu eða ná sér í auka námsefni. Þannig að ef það eru einhver sem vilja kannski taka einn kafla á viku eða fá auka námsefni til að vinna úr þá skráið ykkur hér að neðan. Ég sé fyrir mér að við gætum hist í a.m.k. einu sinni í viku í hópvinnuherbergi á hlöðunni og farið yfir efnið. Við ættum líka að geta ráðfært okkur við Umezawa-sensei varðandi aukaefni og þeir sem keyptu gulu málfræði-orðabókina gætu þá loksins farið að nota hana í stað þess að hún safni ryki ofan í skúffu.

Þau sem ætla sér að fara út að læra eftir sumarið þyrftu helst að vera búin með báðar bækurnar fyrir það en eins og staðan er í dag þá munum við bara taka 1 kafla úr seinni bókinni. Það væri því alveg kjörið að rotta sig saman, spýta í lófana og MASSIDDA!

Veit nú ekki hvernig álagið á eftir að vera með bókmenntakúrsinn og kvikmyndakúrsinn, verðum bara að sjá til hvernig það þróast. Reikna nú ekki með neinu ógurlegu.

Annars ætla ég nú bara að minna aftur á kvikmyndasýninguna (skrollið neðar til að sjá) á morgun, þriðjudaginn 3. febrúar í Árnagarði stofu 301 klukkan 7. Twilight Samurai.

.::::.

17:44 skrifaði Gunnella:

Japanese cosplay ;-)

Hugsanlega hljómar betur...."vantar ykkur búninga fyrir öskudaginn" ;-) heldur en cosplay en hér er allavegana linkur sem gaman er að skoða, ef ekki fyrir annað en svipinn á módelunum ;-)



.::::.

2004-02-01

23:17 skrifaði Svanur:

Jæja, þannig að maður verði ekki of seinn í þessu(Damn those ADDs!)

Núna, þriðjudaginn 3. febrúar sýnum við margverðlaunuðu myndina "Twilight Samurai(Tasogare Seibei)" í Árnagarði stofu 301 klukkan 7. Fyrir þá sem eru í kvikmyndakúrsinum þá er þetta tilvalið tækifæri til að kynnast nútíma Samurai myndum.

Smá linkur á upplýsingar um myndina


.::::.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

archives