Heimasíða japönskunema 
|
Ef það vantar íslenska stafi í nafnið ykkar þá vinsamlegast loggið ykkur inn á blogger, farið í "Edit your profile" og lagið nickið ykkar.
Námstengdir linkar Japanese < - > English Dictionary orðabókin að ofan með japönsku letri Hreyfimyndir sem sýna rétta ritun kanji
Japönskunemar á internetinu Gunnella
Ef fleiri en þetta eru með heimasíður þá endilega sendið póst hingað og þeim verður bætt í listann
|
2004-04-2616:34 skrifaði Kristófer:Stóra hópvinnuherbergið á fjórðu hæð þjóðarbókhlöðunnar kl 20:00 - 22:00 í dag, mánudag Segir í raun allt sem segja þarf bí ðer or bí skver! ----- bæ ðe vei fyrir þá sem eiga í erfiðleikum með að finna síðuna með hvaða próf eru í hvaða stofum: skipan í stofur .::::. 2004-04-2315:55 skrifaði Kristófer:Lögin góðu Jæja ég vona að sem flestir skoði síðuna í dag. Þannig er að fyrir páskafrí lét Koshizuka-sensei okkur fá 2 blöð með lögum sem nemendur syngja venjulega fyrir kennarana sína þegar skólaárið er búið, einhverskonar kveðjulög. Nú ég sá að það yrði alveg über tímafrekt að skrifa þetta allt upp í Word þannig að ég tók bara ljómynd af hvoru lagi og setti myndirnar í Word skjal sem þið getið sótt hér. Reynið svo að læra þetta fyrir morgundaginn :) Verðum nú að geta sungið en ekki hvíslað og muldrað... .::::. 2004-04-1419:32 skrifaði Svanur:Jæja, fyrst að fagnaðarlætin og "look at those gits" myndasýningin eru búin, þá er tími til að fara að læra undir próf og hananú. Annars... Ætlaði að benda á að Nexus er að selja nokkrar japanskar mangabækur, þeas manga sem er óþýtt og kemur beint frá austurlandi(samt ekki okkar austurlandi). Það sniðuga við þessar bækur er að þær eru með furigana við hliðina á kanji táknunum þannig að auðveldara er að lesa þær. Ég hvet alla og þá meina ég ALLA til þess að skella sér á svona bækur, því það er óneitanlega gaman að rembast í gegnum þær. Einnig mun betri sala eflaust auka úrvalið hjá þeim eitthvað sem ég vill í örvæntingunni minni, því bækurnar sem þeir eru með eru ekki frá uppáhaldsstúdíóinu mínu, þó ég láti mig hafa það fyrir þekkinguna sem maður græðir úr henni. Og ykkur til stuðnings, þá er hér afskaplega hentug English-Japanese, Japanese-English online dictionary. Engrish como esta? .::::. 2004-04-1321:32 skrifaði Kristófer:Myndir frá Lokadjammi Svo er bara um að gera að skipuleggja fleiri japönsku-djömm :) .::::. 17:55 skrifaði Svanur: Jæja, dómarnir eru komnir og svo virðist vera að eftirtaldir menn hafi komist inn í herskólann í Kansai: Gummo R(ectus) Bjössason Kristófer Kólumbus HannerSon Halldór Elísa "ég er ekkert drukkinn"son Mikhael Gabriel son of Lucifer Sigurður "Ho ah you?" Maggason Ég vil óska þessum fimm drengjum til hamingju með daginn og ég vona að þetta verði eitthvað sem þið munið njóta og hafa gaman af. Möo BANZAI!!! PS: Ef þið verslið ekki fyrir mig einhverja sniðuga leiki þarna úti(Naruto 3,4,5,6,7 osfrv), þá mun ég senda hersveit af velþjálfuðum köngulóarhermönnum sem munu rífa holdið af beinum ykkar. GG :D .::::. 2004-04-1211:40 skrifaði Svanur:Jæja, takk fyrir síðast segi ég bara.... :S Hérna er tvennt sem ætla að benda fólki á, ég er ekki að biðja fólk um að skrifa undir, langaði bara að sína hvað félagi okkar Toshiki Toma hefur verið að bakstrast. Undirskriftalistinn hans Toshiki Vefur(bloggið) hans Toshiki .::::. 2004-04-0716:14 skrifaði Kristófer:Lokapartí! Já núna á föstudaginn verður lokapartíið okkar eins og ég vona að allir viti. Þar sem nemendafélög skulu ekki skila neinum hagnaði þá tókum við hverja einustu krónu sem eftir var í sjóðnum og keyptum fyrir þær áfengi. Með "áfengi" þá er átt við efnivið í eina góða bollu og svo 115 bjóra. Já gott fólk, ykkar bíða 115 bjórar og þeir verða að klárast! Það er því eins gott að allir fari í Dóra-fílinginn og drekki eins og þeim sé borgað fyrir það. Ekki úr vegi að taka svo nokkra góða skandala og muna ekkert eftir því daginn eftir. Nánari upplýsingar um herlegheitin er svo að finna í pósti sem þið fenguð frá Magga. Eins og ég sagði þá er þetta áfengi keypt fyrir sjóðspening japönskunema þannig að þetta er einungis ætlað fyrir japönskunema. Engin snýkjudýr nema leyfi hafi fengist fyrir þeim. pís át. .::::. archives |