Heimasíða japönskunema    


Ef það vantar íslenska stafi í nafnið ykkar þá vinsamlegast loggið ykkur inn á blogger, farið í "Edit your profile" og lagið nickið ykkar.

Námstengdir linkar

Linkasíða Gunnellu

Japanese < - > English Dictionary

orðabókin að ofan með japönsku letri

Jeffrey's Kanji Lookup

Hreyfimyndir sem sýna rétta ritun kanji

Shodouka

Hiragana Challenge

Svo þú vilt læra japönsku?!?


Japönskunemar á internetinu

Svanur Super Saiyan

Gunnella
Ester
Hörður Mar
Kristófer
Davíð og Vitleysingarnir


Ef fleiri en þetta eru með heimasíður þá endilega sendið póst hingað og þeim verður bætt í listann

Banzai!! Myndir!


Weblog Commenting by HaloScan.com

2004-05-17

21:59 skrifaði Kristófer:

Komið að leiðarlokum?

Nú er síðasta einkunnin komin í hús og þar með allt útlit fyrir að leiðir okkar allra séu endanlega skildar. Ég er nú ekki á þeim buxunum að við ættum að fara hvert í sitthvort hornið og húka þar og gleyma góðum dögum japönskunnar. Við höfum sýnt það að þegar við hittumst, með eða án áfengra drykkja, þá verður heljarinnar stuð. Látum stuðið ekki deyja!

Mér finnst það alveg kjörið að við rífum okkur upp á rasshárunum og hittumst reglulega í sumar og tjúttum eitthvað! Hvað segið þið um það? Ég vona allavega að þið kíkið stöku sinnum á þessa síðu hérna :)

Það er kannski ekki úr vegi að áhugasamir láti mér í té MSN Messenger e-mailin sín svo við getum rottað okkur betur saman. Er að vinna í að henda upp lista yfir það sem ég hef hérna. Ef þið viljið bæta ykkur á listann sendið mér þá póst á kristoh[at]hi.is

Sýnum smá lit í sumar.


.::::.

2004-05-13

21:50 skrifaði Kristófer:

Ræðukeppnin á laugardaginn

Já sumir halda kannski að stórviðburður laugardagsins sé Eurovision en þeim skjátlast! Á laugardaginn mætast stálin stinn í ræðukeppni á japanskri tungu. Keppt er til veglegra verðlauna þó svo enginn viti hver þau eru...kannski bara koss á kynn frá sætri japanskri stúlku.

Skráð í keppnina (svo ég viti) eru eftirfarandi:

Gunnella
Pétur Guðmundur
Kristófer
Árni
Álfrún
Davíð

Um að gera að mæta og hvetja liðið áfram, ætti að verða skemmtilegt. Aldrei að vita nema einhver óvænt uppákoma verði sem þið viljið alls ekki missa af :)


.::::.

2004-05-06

12:04 skrifaði Kristófer:

Partí eða...?

Sæl veriði, bæði þið sem eruð nú þegar búin í munnlega og því komin í frí og svo þið hin sem hafið alla ævi borið bölvun fyrsta stafs nafns ykkar.

Jæja eitthvað lítið er vitað hvað við ætlum að gera af okkur eftir próf. Viljið þið bara hittast á einhverjum pöbb eða eigum við að skipuleggja eitthvað. Helena hefur boðið fram íbúð sína sem fórn fyrir fjöldann þannig að ef ekkert annað gefst þá getum við hist þar og helt bjór á gólfin (you know who you are).

Fórnin er staðsett á Skarphéðinsgötu 18 "milli rauðarárstígs og snorrabrautar". Mætum þá þangað svona á bilinu 9-10 á laugardaginn, hress sem fress.

Ef einhver er með betri uppástungu eða getur fært mikilfenglegri fórn þá endilega láta heyra í sér.


.::::.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

archives